Meðferðir okkar byggja allar á persónulegri þörf hvers og eins Hægt er að sjá helstu meðferðir okkar hér að neðan
Viltu léttast?
Dáleiðslan miðar að því að þú finnir meira fyrir seddutilfinningunni. Með aðstoð dáleiðslu er hugur þinn virkjaður til að breyta lífinu þannig að þú verðir saddur/södd á minni matarskömmtum en getir áfram borðað sama mat.
Er flughræðsla að plaga þig?
Með dáleiðslu má finna ástæðu fyrir flughræðslunni. Dáleiðslan vinnur úr og upprætir kvíðann sem flughræðslunni fylgir og tekur á honum þannig að flughræðslan hætti að gera vart við sig.
Ertu með prófkvíða?
Með dáleiðslu má auka sjálfstraust og hjálpa þér að komast yfir kvíðann sem getur fylgt því að taka próf. Þannig að þú eigir auðveldara með að einbeita þér þegar kemur að því að taka próf.
Viltu hætta að reykja?
Með dáleiðslu er hægt að hjálpa þér að breyta vana. Tóbaksnotkun er ávani sem margir eru orðnir leiðir á en eiga erfitt með að hætta. Tekið er á öllu sem viðkemur vana og venjum í kringum tóbak og þér hjálpað í gegnum fyrstu reyklausu dagana.